Það er mikilvægt að átta sig á því að í öllum breytingum felast tækifæri. Að sjálfsögðu eru margir sem ekki ná að bjarga sér þegar áfall líkt og það sem við höfum orðið fyrir dynur yfir þjóðina. Því er mikilvægt að búa sig vel undir það sem er framundan. Þeir sem munu komast af eru þeir sem aðlagast breyttum aðstæðum og tileinka sér nýjar áhrifaríkar aðferðir í sinni markaðssetningu.
Því hef ég sett upp nýtt námskeið - Vertu ofan á í kreppunni. Námskeiðið byggir að mestu á námskeiðinu "Náðu árangri á netinu" þar sem ég kenni helstu aðferðir við markaðssetningu á netinu í dag, en sérstök áhersla verður lögð á markaðssetningu á krepputímum.
Fáðu þekkinguna inn í hús
Dagana 3.-4. Nóvember næstkomandi mun ég standa fyrir tveggja daga námskeiði í markaðssetningu á krepputímum með megin áherslu á internetið, en Internetið er eini miðillinn þar sem útlit er fyrir áframhaldandi vöxt á næstu mánuðum.
Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur öðlist skilning á helstu þáttum markaðssetningar á netinu, áherslubreytingar á krepputímum og læri aðferðir sem nýtast strax til aukins árangurs. Meðal þess sem farið er eru markaðsaðgerðir sem virka á krepputímum, söluhvatar á vefsíðum, leitarvélabestun, Google AdWords, blogg markaðssetning, “viral markeitng”, “social media marketing” og margt fleira.
Nú er mikilvægt að tryggja að góð þekking og skilningur á helstu þáttum markaðssetningar á Internetinu sé til staðar inn í fyrirtækinu.
Nánari upplýsingar um "Vertu ofan á í kreppunni"
Hjörtur

