Í gær opnaði nýr vefur á vegum Scope Communications ehf. sem heitir vidskiptaferdir.is. Þessi vefur er ferðavefur þar sem fólk getur bókað bílaleigubíla, flug og gistingu hvar sem er í heiminum á lægstu vefverðunum. Á vefnum er notast við DoHop flugleitarvélina sem er ein sú hraðvirkasta og yfirgripsmesta á netinu í dag með yfir 660 flugfélög sem þeir fletta upp. Í bílaleigum er boðið upp á Dollar og AutoEurope sem eru með bestu verðin, hvor í sinni heimsálfunni.
Hægt er að leita í tugum þúsunda hótela um allan heim að bestu verðunum og það sem vidskiptaferdir.is býður upp á sem oft er mjög erfitt að finna eru hótelbókanir fyrir hópa. Nú þarftu ekki lengur að borga yfirverð hjá ferðaskrifstofum þegar þú bókar fyrir heilan hóp heldur geturðu leitað bestu tilboðanna á netinu.
Á vefnum er blogg þar sem settar verða reglulega inn fréttir og greinar um áhugaverða veitingastaði, hótel og áfangastaði um allan heim auk þess sem þar munu verða birt sérstök tilboð sem eru í gangi hverju sinni. Hægt er að gerast áskrifandi að blogginu í tölvupósti ef þú vilt tryggja að þú missir ekki af neinu.
Kíktu á vidskiptaferdir.is og athugaðu hvort þú getir ekki sparað þér nokkra þúsundkalla á næsta ferðalagi.
Hjörtur










