Í kjölfar efnahagshrunsins hafa mörg fyrirtæki og markaðsdeildir þurft að hugsa alla markaðssetningu upp á nýtt. Skyndilega er ekkert fjármagn í flottar sjónvarpsauglýsingar, áberandi heilsíður og opnur, eða stórar herferðir. Í staðinn þarf að beita öðrum aðferðum sem krefjast lítils fjármagns, en oft meiri þekkingar og kænsku. Þá er markaðssetning á netinu það sem verður ofan á.
Hægt er að ná gríðarlegum árangri fyrir lítið sem ekkert fé, ef fólk kann réttu aðferðirnar. Sjálfur hef ég fengist við markaðssetningu af þessu tagi síðan 1997 og hef haft unun af því að geta fyrir lítið sem ekkert fé skákað stórum fyrirtækjum með milljónabudget. IfTheWorldCouldVote.com er eitt dæmi um slíkt þar sem okkur tókst að fá yfir 800.000 manns frá 213 löndum til að kjósa, án þess að eyða krónu í auglýsingar á meðan The Economist náði aðeins broti af þeim fjölda í sína könnun.
Undanfarin ár hef ég haldið fjöldann allan af fyrirlestrum og námskeiðum um markaðssetningu á Internetinu og nú eftir áramót hefur orðið mikil aukning í aðsókn á námskeiðin. Það er mjög ánægjulegt að sjá fólk og fyrirtæki uppgötva máttinn sem þessi miðill hefur og hvað hægt er að gera. Á námskeiðinu kenni ég þátttakendum að nýta Facebook, Twitter, blog, orðrómsmarkaðssetningu, leitarvélar og fleira auk hefðbundinnar markaðssetningar á netinu. Næsta námskeið verður haldið næstkomandi fimmtudag og föstudag kl. 9-16.
Hér eru nánari upplýsingar um dagskrá, verð og skráningu á námskeiðið Náðu árangri á netinu.
Hjörtur

