MySpace.com mun í dag setja nýjan ókeypis farsíma á markaðinn sem er greiddur með auglýsingum. Vonir standa til að þetta hjálpi til við að afla auglýsingatekna fyrir farsímavefi. Fleiri fyrirtæki munu stefna á að gera hið sama og hefur óstaðfestur orðrómur verið um G-Phone, auglýsingagreiddan farsíma frá Google. Fox sjónvarpsstöðin mun einnig hafa áætlanir um svipaðan síma og Disney hefur þegar reynt sem ekki gekk.
MySpace ætti ekki að eiga í vandræðum með að finna notendur en spurningin er hvernig gangi að fjármagna svona þjónustu og fá auglýsendur til þess að kaupa hana.
Hjörtur Smárason
(via Mashable.com)