Þetta vekur upp mjög þarfar spurningar um hvenær fyrirtæki sé í rétti til að reka starfsmenn vegna bloggskrifa og hvenær ekki. Nú er þetta þriðja málið á skömmum tíma þar sem bloggfærslur kosta fólk starfið (sem kemst í fjölmiðla) og því ljóst að hér er um vaxandi vandamál að ræða. Eru fyrirtæki að nota þetta sem afsökun til að segja upp starfsfólki? Á fólk ekki rétt á því að tjá sig? Á fólk að passa sig meira þegar það tjáir sig um vinnuveitanda sinn eða mál honum tengdum?
Hvað finnst þér?
Hjörtur
ps. Halldór, ef þú lest þetta, þá býð ég þér (og öðrum atvinnulausum) hérmeð á námskeið sem ég verð með á miðvikudaginn í næstu viku í Salnum í Kópavogi um hvernig maður passar upp á nafn sitt á netinu og byggir upp orðspor sitt. Námskeiðið er frítt fyrir atvinnulausa og er frá kl. 9-12.
hahaha alltaf er þetta svona... fólk getur ekki tekið gagnrýni... finnst það bara mjög sorglegt...
allavega vona að hann finni aðra vinnu þar sem alvöru fólk vinnur og kann að meta aðra ;)
Posted by: ísak | 5.2.2009 at 17:15
Ef starfsmaðurinn hefur ekki skrifað undir þagnarskyldusamning, þá er þetta óréttmæt uppsögn.
Ef hann hefur hins vegar skrifað undir slíkan samning, þá átti hann að vita betur.
Posted by: Þór Melsteð | 5.2.2009 at 20:30
Do you recognize that this is correct time to get the loan, which would help you.
Posted by: MCBRIDE19Lela | 24.8.2011 at 05:58