Dagana 21.-23. október verður haldin ráðstefna í Berlín um web 2.0 og bloggheima. Þar munu koma saman öll helstu nöfnin í web 2.0 heimum í Evrópu, eins og James Governor frá Redmonk, Jeff Bates frá SourgeForce, Stowe Boyd frá The Messengers og fleirum. Sjálfur er ég einna spenntastur fyrir fyrirlestri James Governor um Electricity 2.0, hvernig rafmagnsframleiðsla framtíðarinnar verður ekki miðstýrð heldur í höndum fólksins.
Dagskráin er einkar áhugaverð um leið og ráðstefnan er frábært tækifæri til þess að hitta og tengjast web 2.0 fólki frá allri Evrópu.
Þar sem ég er þátttakandi í Web 2.0 Expo Europe Blogging Program, þá get ég boðið lesendum mínum 35% afslátt af passanum á ráðstefnuna. Ef þú vilt nýta þér það, notaðu þá þennan kóða: webeu08gr54 þegar þú skráir þig.
Hjörtur

Comments