
Hefurðu þú áhuga á að vinna tvo miða á námskeiðið Vörumerkið ÉG sem haldið verður í salnum á miðvikudaginn kemur?
Nú er tækifærið.
Svona tekurðu þátt:
- Þú skrifar bloggpóst um það af hverju þig langar á námskeiðið Vörumerkið ÉG. Blogpósturinn má líka innihalda sögu um hvernig Google, spjallvefur, blogg eða Facebook hefur komið þér í vanda vegna þess sem hefur verið sett þar inn, hvort sem þú eða einhver annar gerði það.
- Þú setur inn tengil yfir á síðu námskeiðsins:
http://blog.scope.is/namskeid_og_fyrirlestrar/vorumerkid-eg.html
- Þú lætur mig vita með því að senda mér tölvupóst á hjortur (hjá) scope.is. Í tölvupóstinum þarf að koma fram hver þú ert og tengill yfir á bloggfærsluna.
Ég mun svo fara yfir bloggfærslurnar á miðvikudagsmorgun og velja sigurvegarann út frá því hvað mér finnst vera besta færslan. Sigurvegarinn fær síðan miða fyrir tvo á námskeiðið eins og fyrr sagði.
Þú getur lesið meira um námskeiðið á síðu námskeiðsins. Nú eða ef þú hefur ekki áhuga á að taka þátt í keppninni, á geturðu líka farið bara beint inn á salurinn.is og keypt miða þar.
Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi þetta, þá geturðu sent mér póst eða skrifað hana í kommentin hér fyrir neðan.
Hjörtur
I would like to propose not to hold off until you earn enough cash to buy different goods! You should just take the business loans or just small business loan and feel free
Posted by: RICHARDSMari26 | 7.12.2011 at 02:44