Þá er komið að næsta námskeiði í markaðssetningu á Internetinu. Fimmtudag og föstudag í þessari viku verð ég með tveggja daga námskeið í markaðssetningu á Internetinu á Grand Hotel Reykjavik.
Síðast var uppselt, þannig að tryggðu þér sæti í tíma!
Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur öðlist skilning á öllum helstu þáttum markaðssetningar á netinu og læri aðferðir sem nýtast til árangurs. Vægi Internetsins í markaðssetningu eykst til muna í samdrætti og því mikilvægt fyrir fyrirtæki að tryggja að góð þekking og skilningur á efninu sé fyrir hendi innanhúss.
Námskeiðið hefst klukkan 9.00 báða dagana og stendur til klukkan 16.00 Boðið er upp á kaffiveitingar í hléum en hádegismatur er ekki innifalinn.
Nánari upplýsingar um námskeiðið
Hjörtur
Comments