Þegar þú svarar í símann í fyrirtækinu þínu, hvað segirðu? Segirðu bara “Já” í þurrum tón, eða svararðu með nafni fyrirtækis og starfsmanns? En þegar þú tekur á móti gestum sem koma inn á vefinn þinn? Það er ekki síður mikilvægt að kynna sig á netinu eins og í öðrum miðlum. Fólk þarf að vita við hvern það er að eiga samskipti, hver það er sem er að miðla upplýsingunum til þeirra.
Það sem skiptir máli er að skapa traust á milli þess sem sendir skilaboðin og þess sem tekur við þeim. Þetta á náttúrulega við alveg óháð þeim miðli sem notaður er til að koma skilaboðunum á framfæri. Það á ekki að skipta máli hvort skilaboðin eru meitluð í stein eða rafræn á vef. Það sem skiptir máli er trúverðugleiki þess er skilaboðin sendir. Er það einhver sem þú getur treyst? Hvernig veistu hvort þú getur treyst viðkomandi? Þeir sem njóta mest trausts eru fyrst og fremst þeir sem fólk þekkir, hvort sem um ræðir einstaklinga eða fyrirtæki. Fyrir þá sem ekki njóta trausts fyrirfram, skiptir miklu máli að byggja upp það traust, að sýna að þú sért traustsins verður.
Nýlega opnaði ný netverslun sem býður upp á geisladiska, DVD myndir og ýmis raftæki á mjög góðu verði. Ég varð spenntur yfir auglýsingunum og ákvað að skoða hvaða verslun þetta væri og hver væri á bak við hana. Þegar inn á vefinn kom tóku á móti mér ýmis gylliboð og freistingar. Þegar ég hins vegar renndi niður alla síðuna til að sjá hver stæði á bak við þetta var engar upplýsingar um það að finna. Ekkert nafn, ekkert heimilisfang, ekkert símanúmer, ekki einu sinni netfang. Ég fann heldur enga tengla eins og “Um fyrirtækið” eða “Hafðu samband” þar sem yfirleitt er hægt að nálgast frekari upplýsingar um hver það er sem er á bak við vefinn. Í fréttatilkynningu sem birt er neðst á forsíðu er reyndar sagt að fyrirtækið beri sama nafn og síðan, en engar frekari upplýsingar var að finna um fyrirtækið. Á öðrum stað á vefnum er boðið upp á að senda fyrirspurnir en þar eru engin netföng heldur eingöngu form sem fyllt er út. Ég get hvergi séð hvert það er sent. Ég gat því ekki með nokkru móti komist að því við hvern ég væri að versla.
Ég tel mig ekki vera gamaldags og er almennt mjög viljugur til að versla á netinu, hvort sem það eru flugmiðar, bílar, bækur eða jafnvel heilu húsin. En það byggist allt á því að ég viti við hvern ég sé að skipta, að ég hafi eitthvað traust til viðkomandi. Ef ég get ekki séð það þá á ég ekki viðskipti við viðkomandi, ekki frekar en að ég myndi láta hettuklæddan mann afgreiða í mig í verslun eða banka. Ég get því ekki hugsað mér að eiga viðskipti í viðkomandi netverslun þó að tilboðin séu góð. Og í raun er það þannig að ég verð ennþá tortryggnari eftir því sem tilboðin eru betri. Þetta getur verið hver sem er og þar af leiðandi líka einhver sem er að safna kreditkortanúmerum í jólavertíðinni og lætur sig svo hverfa um það leyti sem vörurnar ættu að vera að berast fólki. Ekki jókst traustið þegar ég fór inn á þá síðu þar sem tekið er á móti greiðslukortanúmerinu, því þar var engin vottun, engin öruggur vefþjónn, ekkert til að auka traustið. Það skiptir því ekki máli hversu góð tilboð þeir eru með, ég mun ekki versla þar meðan ég sé ekki hver sé að bak við verslunina, hvar ég geti haft samband við hana eða að einhver annar ábyrgist öryggi hennar með vottun.
Ég ákvað nú að fara í smá rannsóknarvinnu til þess að athuga hvort eitthvað raunverulegt fyrirtæki er á bak við þennan vef. Nærtækast er náttúrulega að fletta upp í símaskránni en þar er ekkert fyrirtæki skráð undir því nafni sem gefið er upp á vefnum. Ég fann í skrám Ríkisskattsstjóra fyrirtæki með sama nafni sem var stofnað á Selfossi fyrir nokkrum árum og það passar við þann aðila sem er skráður fyrir léninu í gagnagrunni ISNIC. Þannig að líklegast er það aðilinn á bak við netverslunina. Ég á hins vegar ekki að þurfa að fara að leita í gagnagrunnum opinberra stofnanna til þess að komast að því hver sé að reyna að selja mér vöruna á netinu. Mér tókst sem sagt að finna heimilisfang á Selfossi, þannig að ef ég vil geta haft samband við þá sem standa á bak við verslunina, get ég gert mér ferð á Selfoss og athugað hvort ég finni einhvern á viðkomandi heimilisfangi.
Ein af lykilreglunum í uppsetningu vefja er að upplýsingar um hvernig hægt sé að hafa samband séu alltaf aðgengilegar af öllum síðum. Ástæðan er tvíþætt. Annars vegar er það traustið sem ég talaði um hér að ofan, að ég sjái hver sé að miðla til mín upplýsingunum, og hins vegar er það hreinlega nauðsynlegt til að selja. Ef mér líst vel á það sem verið er að bjóða á síðunni, hvort sem það er vara eða þjónusta, þá vil ég geta haft samband við þann sem býður það án þess að þurfa að fara út í heillanga leit um rangala vefsins til að finna símanúmer eða netfang. Helst eiga upplýsingarnar að vera á hverri einustu síðu, að öðrum kosti alla veganna tengill yfir á síðu þar sem allar upplýsingar er að finna. Allar upplýsingar eru nafn fyrirtækis, heimilisfang, símanúmer og netfang. Mjög æskilegt er að nöfn stjórnenda og þar af leiðandi ábyrgðarmanna vefsins séu líka birt á einhverri einni síðu. Ef þú vilt að fólk geti treyst þér jafnvel á netinu og annars staðar, þá er nauðsynlegt að þú sýnir “andlit” þitt.
Hjörtur
Comments