Miðvikudaginn 11. febrúar næstkomandi mun ég bjóða upp á 3 klst. námskeið í "Personal branding" í Salnum í Kópavogi fyrir atvinnulausa. Námskeiðið er frítt.
Markmið námskeiðisins er að þátttakendur geri sér grein fyrir þeim hættum sem orðstír þeirra stafar af bloggsíðum, netsamfélögum og spjallþráðum, þeim áhrifum sem slíkt getur haft á starfsframa. Þátttakendur læra aðferðir til þess að vernda orðspor sitt á netinu, hafa áhrif á leitarniðurstöður, og hvernig þeir geta markvisst byggt upp nafn sitt og orðspor með hjálp Internetsins.
Á námskeiðinu verður farið yfir af hverju það skiptir svona miklu máli í dag að vera vakandi yfir nafninu sínu á Internetinu og mun ég sýna nokkur dæmi um hvernig það sem finnst á Internetinu, bloggsíðum og netsamfélögum eins og Facebook hefur jafnvel kostað fólk vinnuna.
Google gleymir aldrei – Hvað finnur Google um þig þegar starfsmannastjórinn (eða mamma þín eða "deitið" þitt) slær inn nafninu þínu? Hvað geturðu gert til þess að hafa áhrif á niðurstöður Google?
Myndaleit - hvaða myndir eru tengdar við nafnið þitt?
Bloggleit - hvað er skrifað um þig á blogginu?
Byggðu upp þitt eigið vörumerki
Nafn - Hvers virði er nafnið þitt?
Titill - Hvað segir titillinn?
Mynd - Hvernig á að velja réttu myndina
Sérfræðingur á þínu sviði - jafnt á netinu sem utan þess
Hvar áttu að vera á netinu? – Netsamfélög, skráningar, blogg ...
LinkedIn – Netsamfélagið LinkedIn verður tekið sérstaklega fyrir, hvernig þú byggir upp prófíl, hvaða áherslur þú þarft að hafa og hvernig þú getur nýtt þær tengingar sem samfélagið býður upp á.
Facebook – Netsamfélagið Facebook er stærsta netsamfélag Íslendinga með yfir 130.000 þátttakendum. Flestir nota það til þess að hafa samskipti við vini og vandamenn utan vinnu, en það þýðir ekki að starfsmannastjórar muni ekki skoða það.
Fyrirlesari er Hjörtur Smárason, ráðgjafi í mörkun og markaðssetningu á Internetinu.
Inga Steinunn Arnardóttir, ráðgjafi hjá Hagvangi mun koma og skýra frá sýn ráðningastofanna á þessi mál.
Það sem þú lærir á þessu námskeiði gæti gert útslagið um draumastarfið eða stóra samninginn.
Námskeiðið er sérstaklega sniðið fyrir fólk í atvinnuleit og er að þessu sinni haldið eingöngu fyrir atvinnulaus. Námskeiðið er frítt.
Staður: Salurinn í Kópavogi
Tími: Miðvikudagurinn 11. febrúar frá kl. 9-12.
Þú getur skráð þig á Facebook eða bara mætt á staðinn fyrir kl. 9 á miðvikudaginn.