Skráðu þig hér á "Vertu ofan á í kreppunni"
Ísland er ekki gjaldþrota. Og ég reikna með því að þú ætlir þér ekki að verða það heldur.
Það eru erfiðir tímar framundan og því er mikilvægt að búa sig vel undir þá. Þeir sem munu komast af eru þeir sem aðlagast breyttum aðstæðum og tileinka sér nýjar áhrifaríkar aðferðir í sinni markaðssetningu.
Fáðu þekkinguna inn í hús
Dagana 3.-4. Nóvember næstkomandi verður haldið tveggja daga námskeið í markaðssetningu á krepputímum með megin áherslu á internetið, en Internetið er eini miðillinn þar sem útlit er fyrir áframhaldandi vöxt á næstu mánuðum.
Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur öðlist skilning á helstu þáttum markaðssetningar á netinu og læri aðferðir sem nýtast strax til aukins árangurs. Meðal þess sem farið er eru markaðsaðgerðir sem virka á krepputímum, söluhvatar á vefsíðum, leitarvélabestun, blogg markaðssetning, “viral markeitng”, “social media marketing” og fleira.
Nú er mikilvægt að tryggja að góð þekking og skilningur á helstu þáttum markaðssetningar á Internetinu sé til staðar inn í fyrirtækinu.
Námskeiðið hefst klukkan 9 báða dagana og stendur til klukkan 16. Boðið er upp á kaffiveitingar í hléum en hádegismatur er ekki innifalinn.
Dagskrá:
- Markaðstækifæri á krepputímum
- Neytandinn ræður
- Birtingar, taktík og áherslur á krepputímum
- Web 2.0 - hvað er það?
- Áhrif af breyttu umhverfi á netinu á markaðssetningu fyrirtækja
- Uppbygging vefja
- Markmiðasetning
- Textaskrif á netinu
- SEO - leitarvélar -
- SEM - auglýsingar á leitarvélum (Google AdWords)
- Netauglýsingar
- Affiliate marketing
- Blog sem markaðstæki
- RSS og podcasting
- Viral marketing
- Tölvupóstur
- Netklúbbar og fréttabréf
- Greiningartæki
- Netsamfélög (Facebook, LinkedIn, TripAdvisor o.fl.)
Fyrirlesari er Hjörtur Smárason sem unnið hefur við markaðssetningu á Internetinu í meira en áratug og veitt fjölda fyrirtækja og sveitarfélaga ráðgjöf um markaðssetningu. Hjörtur hefur haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða, m.a. í Háskólanum í Reykjavík, Háskólanum á Hólum og Visðkiptaháskólanum í Kaupmannahöfn. Hjörtur hefur skrifað reglulega um markaðsmál í Viðskiptablaðinu og heldur úti bloggi um markaðsmál.
Skráðu þig hér á "Vertu ofan á í kreppunni"
Fyrri þátttakendur hafa þetta að segja um námskeiðið:
"Frábært námskeið um frumskóg netheima og þau tækifæri sem eru til staðar á veraldarvefnum til að gera vefsíður sýnilegri. Ég öðlaðist nýja sýn á það markaðssamfélag sem myndast hefur í bloggheimum."
Valgerður Ómarsdóttir, markaðsstjóri Radisson-SAS Hotel Saga
“Takk fyrir að opna nýja heima - þetta var mjög flott fram sett og vakti líka margar spurningar um vald og stjórnun í veröldinni sem ekki sést - og fáir vita af. Mun mæla með þér við alla sem ég hitti og hafa minnstu löngun til að lifa af :)”
Margrét Blöndal, útvarpskona á Rás 2
"Ég vona svo sannarlega að menn nýti sér þetta tækifæri. Ég lærði alveg heilmikið á námskeiðinu og skemmtilegt fannst mér hvað snertifletirnir voru margir og góð mynd gefin af málum á svo stuttum tíma."
Ingigerður Þórðardóttir, mannauðsstjóri Flugfélags Íslands.
"Ég rek Hótel Núp í Dýrafirði þar sem við bjóðum upp á jólahlaðborð. Fyrir námskeiðið vorum við númer 200 á Google fyrir jólahlaðborð en eftir að hafa notað bara eina af þeim aðgerðum sem ég lærði á námskeiðinu var ég kominn í 34. sæti."
Gummi Helga, Hótel Núpi
Skráðu þig hér á "Vertu ofan á í kreppunni"
ps. Ef þú þekkir einhvern sem gæti haft gagn og gaman af þessu námskeiði, sendu viðkomandi þá póst með því að smella hér!.