Markaðssetning á netinu!
ATH! Næsta námskeið í markaðssetningu á netinu verður haldið 15.-16. desember í sal ISNIC í Reykjavík.
Yfir 200.000 Íslendingar eru komnir á Facebook
800 milljón Facebook notendur um allan heim
YouTube er orðin önnur stærsta leitarvél í heimi
180 milljón twitter notendur
5 milljarðar ljósmynda á Flickr
Samfélagsmiðlarnir eru orðnir vinsælli en KLÁM!
Ef samfélagsmiðlarnir geta bylt ríkisstjórnum, ímyndaðu þér þá áhrifin sem þeir geta haft á vörumerkið þitt. Ert þú búin undir nýtt og breytt markaðsumhverfi?
Markaðssetning á netinu
Þú öðlast skilning á þeim breytingum sem eru að eiga sér stað í markaðssetningu á netinu með tilkomu netsamfélaga eins og Facebook og Twitter, helstu aðferðum í markaðssetningu á netinu, leitarvélabestun og færni í notkun þeirra. Námskeiðið er fjárfesting sem skilar sér strax í bættum árangri af markaðssetningu á Internetinu.
FYRIR ÞIG
Námskeiðið er hugsað fyrir markaðsfulltrúa, markaðsstjóra, vefstjóra, stjórnendur fyrirtækja, nethönnuði, grafíska hönnuði, ferðamálafulltrúa, einyrkja, frumkvöðla og fleiri.
Námskeiðið hefst klukkan 9 báða dagana og stendur til klukkan 16.
* Vegleg vinnubók fylgir
* Boðið er upp á kaffiveitingar í hléum
Dagskrá:
- Áhrif af breyttu umhverfi á netinu á markaðssetningu fyrirtækja
- Uppbygging vefja
- Markmiðasetning
- Textaskrif á netinu
- SEO - leitarvélar
- SEM - auglýsingar á leitarvélum (Google AdWords)
- Netauglýsingar
- Greiningartæki
- Affiliate marketing
- Tölvupóstur
- Netklúbbar og fréttabréf
- Social media - mistök og möguleikar
- Blog sem markaðstæki
- RSS og podcasting
- Viral marketing
- Facebook
- Aðrir samfélagsvefir (Flickr, YouTube, TripAdvisor, Foursquare o.fl.)
Fyrirlesari er Hjörtur Smárason, einn reyndast sérfræðingur landsins á þessu sviði. Hjörtur hefur starfað við markaðssetningu á netinu síðan 1997 og stjórnar netherferðum fyrir ýmis fyrirtæki og stofnanir, m.a. eina af höfuðborgum EU. Hjörtur kennir markaðssetningu, nýsköpun og vöruþróun við Háskólann á Hólum, heldur reglulega fyrirlestra og námskeið í háskólum, fyrirtækjum og ráðstefnum bæði hér heima og erlendis, og hefur skrifað mikið um markaðsmál í Viðskiptablaðið og á bloggi sínu Marketing Safari, sem hefur verið valið á lista yfir bestu markaðsblogg heims.
Hjörtur er jafnframt höfundur netbókarinnar "The Marketer's Magic Chest - Marketing tips, tricks and tools to unlock the chains of recession" og heldur úti ýmsum vefjum, þeirra á meðal IfTheWorldCouldVote.com sem fengið hefur mikla athygli út um allan heim.
Raunveruleg dæmi um árangur
Hjörtur mun m.a. segja frá því hvernig honum tókst að fá yfir 800.000 manns frá 213 löndum til þátttöku á vefnum án þess að kosta til einni einustu krónu og hvernig hann og fjölskylda hans notaði samfélagsmiðla til þess að vinna "The Greatest Holiday in the World", hótelkeppni Radisson Blu hótelkeðjunnar.
Meðal fyrirtækja og stofnana sem sótt hafa þjálfun hjá Hirti má nefna:
365 miðlar, Arctic Trucks, Arctic Velvet, Árvakur, Atómstöðin, Atlantic Airways, Borgun, Byr, Dive.is, Ferðamálastofa, Fosshótel, Flugfélag Íslands, Icelandair, Icelandair Hotels, Íslenska auglýsingastofan, Íslenskir fjallaleiðsögumenn, Isnic - Internet á Íslandi, Grand Hotel Reykjavik, Guðmundur Tyrfingsson, Hótel Hekla, Hótel Holt, Hótel Kea, Hótel Laki, Hótel Rangá, Kayakferðir, Landsbankinn, Leikfélag Reykjavíkur, MP banki, Nammi.is, Nordic eMarketing, Nova, Radisson Blu, Skeljungur, Skýrr, VÍS, Visit Reykjavik, Visit Faroe Islands auk fjölda annarra stórra og smárra fyrirtækja.
Umsagnir:
"I would be lost without Hjortur Smarason, from whom I am taking lessons.....and who has taught me so much! He understands the modern media at a very deep level, is incredibly creative with manipulating it.....but is also able to talk plain sense to people like me, always explaining things in highly understandable terms. I really know of no social media consultant anywhere today--his country or mine!--who does a better job."
David Rosengarten, Food and wine writer, TV host and best-selling author, New York
"Ég gerði mér grein fyrir að við rekstur Hótels væri ekkert annað í boði en að vera sýnilegur á vefnum og er ég af þeirri kynnslóð að vera ekki mjög sterk í þessum samskiptamiðlum og kunni ekki að nota það rétt. Það er skemmst frá því að segja að núna er komin upp Facebook síða, Twitter og Flicker í nafni Hótel Heklu með hreint ótrúlegum árangri. Takk kærlega fyrir mig, mæli hiklaust með þessu við alla sem þurfa á Internetmiðlum að halda við sína markaðssetningu."
Sigrún Lára Hauksdóttir, hótelstjóri Hótel Heklu
"Takk fyrir að opna nýja heima - þetta var mjög flott fram sett og vakti líka margar spurningar um vald og stjórnun í veröldinni sem ekki sést - og fáir vita af. Mun mæla með þér við alla sem ég hitti og hafa minnstu löngun til að lifa af :)"
Margrét Blöndal, útvarpskona
"Ég vona svo sannarlega að menn nýti sér þetta tækifæri. Ég lærði alveg heilmikið á námskeiðinu og skemmtilegt fannst mér hvað snertifletirnir voru margir og góð mynd gefin af málum á svo stuttum tíma."
Ingigerður Þórðardóttir, mannauðsstjóri Flugfélags Íslands.
"Frábært námskeið um frumskóg netheima og þau tækifæri sem eru til staðar á veraldarvefnum til að gera vefsíður sýnilegri. Ég öðlaðist nýja sýn á það markaðssamfélag sem myndast hefur í bloggheimum."
Valgerður Ómarsdóttir, markaðsstjóri Radisson-Blu Hotel Saga
Fullt verð fyrir námskeiðið er 65.000 kr.
Tilboð til SAF og SVEF félaga: 48.000 kr.!
Athugið! Munið eftir mótframlagi Vinnumálastofnunar og verkalýðsfélaganna. Námsmenn fá 50% afslátt af fullu verði námskeiðsins.
Nánari upplýsingar um námskeið í markaðssetningu á netinu veitir Hjörtur í síma 6171819 eða hjortur@scope.is
Skráning:
Sendu póst á hjortur@scope.is með upplýsingum um fjölda þátttakenda, nöfn, kennitölu greiðanda, símanúmeri og netfangi.
ps. Ef þú þekkir einhvern sem gæti haft gagn og gaman af námskeiði í markaðssetningu á netinu, sendu viðkomandi þá póst með því að smella hér!.
Hjörtur Smárason
- Markaðssetning á netinu -