ATH! Ný dagsetning!
Námskeiðið er haldið á Grand Hotel Reykjavik dagana 17.-18. apríl 2008.
FYRIR ÞIG
Námskeiðið er hugsað fyrir markaðsfulltrúa, markaðsstjóra, vefstjóra, stjórnendur fyrirtækja, nethönnuði, grafíska hönnuði, ferðamálafulltrúa, einyrkja, frumkvöðla og fleiri.
Þú öðlast skilning á helstu þáttum markaðssetningar á netinu og færni í notkun þeirra. Námskeiðið er fjárfesting sem ætti að skila sér strax í bættum árangri af markaðssetningu á Internetinu.
Námskeiðið hefst klukkan 9 báða dagana og stendur til klukkan 16. Boðið er upp á kaffiveitingar í hléum en hádegismatur er ekki innifalinn.
Dagskrá:
- Ranghugmyndir um markaðssetningu á Internetinu
- Web 2.0 - hvað er það?
- Áhrif af breyttu umhverfi á netinu á markaðssetningu fyrirtækja
- Uppbygging vefja
- Markmiðasetning
- Textaskrif á netinu
- SEO - leitarvélar -
- SEM - auglýsingar á leitarvélum (Google AdWords)
- Netauglýsingar
- Affiliate marketing
- Blog sem markaðstæki
- RSS og podcasting
- Viral marketing
- Tölvupóstur
- Netklúbbar og fréttabréf
- Greiningartæki
- Netsamfélög (Facebook, LinkedIn, TripAdvisor o.fl.)
- Skoðun á vefsíðum þátttakenda ef tími gefst til
Fyrirlesari er Hjörtur Smárason sem unnið hefur við markaðssetningu á Internetinu í meira en áratug og veitt fjölda fyrirtækja og sveitarfélaga ráðgjöf um markaðssetningu. Hjörtur hefur haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða, m.a. í Háskólanum í Reykjavík, Háskólanum á Hólum og Visðkiptaháskólanum í Kaupmannahöfn. Hjörtur er með vikulegan pistil um markaðsmál í Viðskiptablaðinu og heldur úti bloggi um markaðsmál.
Fyrri þátttakendur hafa þetta að segja um námskeiðið:
"Frábært námskeið um frumskóg netheima og þau tækifæri sem eru til staðar á veraldarvefnum til að gera vefsíður sýnilegri. Ég öðlaðist nýja sýn á það markaðssamfélag sem myndast hefur í bloggheimum."
Valgerður Ómarsdóttir, markaðsstjóri Radisson-SAS Hotel Saga
Verð fyrir námskeiðið er 48.000 kr. Félögum í FVH, SAF, SVEF og ÍMARK bjóðast sérstök afsláttarkjör.
Skráðu þig hér á "Náðu árangri á netinu - námskeið í markaðssetningu á Internetinu"
ps. Ef þú þekkir einhvern sem gæti haft gagn og gaman af þessu námskeiði, sendu viðkomandi þá póst með því að smella hér!.