Fimmtudaginn 8. september verð ég með 3ja tíma námskeið í Dokkunni, þar sem ég mun fara yfir twitter og foursquare og hvernig þessir miðlar geta nýst fyrirtækjum í markaðssetningu í gegnum farsíma.
Snjallsímarnir hafa gjörbreytt aðgengi fólks að upplýsingum - og möguleikum þess til þess að deila upplýsingum. Twitter er þar áhrifamest en einnig hafa staðsetningarsamfélög verið að ryðja sér til rúms eins og Foursquare, sem er orðið mjög vinsælt í Bandaríkjunum. Þau hafa farið hægt af stað hér á Íslandi en hafa verið að sækja í sig veðrið.
Nánari upplýsingar um námskeiðið er að finna hér: Markaðssetning í gegnum farsíma - Twitter og Foursquare.
Hjörtur
Comments