24.-25. janúar 2008
Náðu árangri á netinu!
Tveggja daga námskeið í markaðssetningu á Internetinu. Eftir vel heppnað námskeið í markaðssetningu á Internetinu sem Scope stóð fyrir á síðasta ári hafa margir spurt hvort ekki verði slíkt námskeið endurtekið. Við höfum því ákveðið að bjóða upp á sambærilegt námskeið nú í lok janúar.
Á námskeiðinu er farið í öll helstu atriði sem hafa þarf í huga við markaðssetningu í fjölmiðlaumhverfi nútímans. Hvaða áhrif hefur þróunin á netinu á markaðssetningu almennt? Hvernig á að bregðast við?
Farið verður yfir uppbyggingu vefsíðna, textaskrif á netinu, skráningu á leitarvélar, markaðssetningu í tölvupósti, netauglýsingar, viral marketing, blog marketing, rss, podcasting, web 2.0, netsamfélög o.fl. o.fl.
Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur læri aðferðir sem nýtist þeim strax til að bæta árangurinn af markaðssetningu á Internetinu.
Fyrirlesari á námskeiðinu er Hjörtur Smárason sem hefur starfað við markaðssetningu á netinu í meira en áratug og verið víða með námskeið og fyrirlestra, m.a. Háskólanum í Reykjavík, Háskólanum á Hólum í Hjaltadal og Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn.
Nánari upplýsingar um námskeiðið er að finna hér: "Náðu árangri á netinu - tveggja daga námskeið í markaðssetningu á Internetinu" eða þú getur skráð þig strax á námskeiðið hér. ATHUGIÐ - TAKMARKAÐUR SÆTAFJÖLDI!
Félagar í Félagi viðskipta- og hagfræðinga, Samtökum aðila ferðaþjónustunar og Ímark njóta sérstakra afsláttarkjara.